föstudagur, febrúar 23, 2007

Útboð - var engin frestun?

Í haust var svokölluð sýndarfrestun á útboðum ríkisins. Þessi frestun átti að slá á þenslu í þjóðfélaginu. Vestfirðingar mótmæltu og sögðust ekki kannast við þessa þenslu sem allir væru að tala um. Ríkisstjórnin fullyrti að engum framkvæmdum yrði frestað. Það stóð til að bundið slitlag yrði komið árið 2008 - þessu var haldið fram fyrir og eftir frestun. En svona hljóðar útboð á svokölluðum Tröllatunguvegi sem er forsenda bundins slitlags til Reykjavíkur frá norðanverðum Vestfjörðum:
Tröllatunguvegur (605), Vestfjarðavegur - Djúpvegur
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í gerð nýs Tröllatunguvegar (605). Verkið felst í gerð nýs vegar frá Vestfjarðavegi (60) í Geiradal, um Gautsdal, Tröllatunguheiði og Arnkötludal að Djúpvegi (61) í Steingrímsfirði. Lengd útboðskaflans er um 24,5 km.

Verki skal að fullu lokið fyrir 1. september 2009.

Er þetta ekki 1 árs frestun - tja, spyr sá sem ekkert veit.....


1 Comments:

At 12:38 e.h., Blogger Jón Atli said...

Eigum við ekki bara að vitna í bæjarstjórnarmann sjálfstæðisflokksins í Bolungarvík:

"Hitt er annað mál að það vegaframkvæmdum hér vestra var aldrei frestað síðasta sumar... verkefnin voru einfaldlega ekki tilbúin til útboðs og þess vegna var hægt að "fresta" þeim. Frestunin var einfaldlega ímyndun.
"

Gildir ekki bara sama um þetta? Ertu ekki bara að ímynda þér þessa frestun?

 

Skrifa ummæli

<< Home