fimmtudagur, desember 28, 2006

Gleraugu


Jæja, ég er ekki aðeins farinn að grána og orðinn gott efni í velmegunarístril – ég er líka kominn með gleraugu. Þetta eru auðvitað grafalvarleg tíðindi og minna mig á að líklega er ég ekki eilífur eins og ég hef haldið sl. 36 ár. Það minnir mig líka á að ég er 36 ára en ekki 18 ára eins og mér hefur fundist frá því að ég og Rúnar Gestsson héldum ógleymanlega afmælisveislu mína árið sem ég varð 17 ára. Sú veisla er ritskoðuð og verður ekki aflétt leynd fyrr en eftir 50 ár. Fannst ég verða 18 þegar ég varð 17 – og þannig hefur þetta verið síðan.

1 Comments:

At 6:15 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Tíhíhí!!!!
Það hlakka ég til að sjá!
Ekki þar fyrir að sjálf á ég gleraugu sem ég veit ekki einusinni um. Útskýrir líklega endalausan höfuðverkin sem ég er með. Mér er þó meira um vert að tapa ekki "coolinu" þessvegna nota ég þau ekki ;o)

Frú 12

 

Skrifa ummæli

<< Home